Hagnaður N1 á fyrstu níu mánuðum ársins nam 794 milljónum króna. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam 690 milljónum sem er töluvert betra en á öðrum ársfjórðungi þegar fyrirtækið hagnaðist um 82 milljónir. Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, er sáttur með fjórðunginn.

VB Sjónvarp ræddi við Eggert eftir uppgjörsfund félagsins í dag.