Eggert Benedikt Guðmundsson hefur látið af störfum sem forstjóri N1 en hann hefur verið forstjóri frá árinu 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að samkomulag hafi náðst milli Eggerts og stjórnar. Eggert Þór Kristófersson, núverandi fjármálastjóri félagsins, hefur verið ráðinn forstjóri.

„Þegar Eggert Benedikt var ráðinn til N1 stóðu miklar breytingar fyrir dyrum. Skráning félagsins á markað hafði verið ákveðin og lauk henni í desember 2013. Auk þessa voru gerðar viðamiklar skipulagsbreytingar sem m.a. fólu í sér stofnun Bílanausts og síðar sölu þess til þriðja aðila. Breytingar voru gerðar á vörustjórnun og birgðahaldi, m.a. með sameiningu á lagerhaldi félagsins í einu húsnæði í Klettagörðum. Þá var rekstrarkostnaður lækkaður með margs konar hagræðingu. Eggert Benedikt hefur leitt þessi verkefni og stjórnað þeim á farsælan hátt. Við viljum nota tækifærið og þakka Eggerti Benedikt fyrir góð störf og óska honum velgengni í framtíðinni“ segir Margrét Guðmundsdóttir stjórnarformaður N1.

Í tilkynningunni segir jafnframt: „Með þessum breytingum mun stjórn N1 leggja áherslu á að lækka kostnað við yfirstjórn félagsins en nú þegar liggur fyrir að framkvæmdastjórum N1 mun fækka um einn þar sem ekki verður endurráðið í stöðu framkvæmdastjóra markaðssviðs, sem nýverið lét af störfum hjá félaginu. Staða fjármálastjóra verður auglýst laus til umsóknar á næstunni.“