Eggert Magnússon hefur keypt 1.827.675 hluti í Hf. Eimskipafélagi Íslands á genginu 41 króna, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Kaupverðið nemur því tæpum 75 milljónum króna.

Eggert er stjórnarmaður í Eimskipafélaginu og fjöldi hluta í hans eigu er 1.843.441. Eggert er fruminnherji í félaginu.