Ágreiningur Egils Helgasonar og fjölmiðlafyrirtækisins 365 vegna fyrirhugaðra starfa Egils hjá RÚV hefur verið leystur með samkomulagi aðila og er hann nú laus undan samningsskuldbindingum sínum við 365, að því er fram kemur í tilkynningu.

"Ég er sáttur við þau málalok sem hafa orðið í þessari deilu," segir Egill í tilkynningu.