Bílasala jókst um 92% hjá Brimborg í septembermánuði og meðan almenn bílasala í landinu jókst um 50% á milli ára. Algjör viðsnúningur hefur orðið segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.

Egill var staddur í París á dögunum þar sem nýir og endurbættir bílar voru kynntir.

Nánar er fjallað um sýninguna í bílablaði Viðskiptablaðsins sem fylgdi með nýjasta tölublaði.