Hagnaður Eglu nam 17,7 milljörðum króna árið 2005, segir í tilkynningu félagsins. Þar af nam hagnaður vegna gengishækkunar á 10,82% eignarhlut í Kaupþingi banka 17,9 milljörðum króna.

Miðað við lokaverð í Kauphöllinni þann 10. febrúar er markaðsverð hlutar Eglu í Kaupþingi banka 71,2 milljarðar króna og hefur hækkað um 32,8% eða 17,6 milljarða króna frá áramótum.

Kaupþing banki er langstærsta eign félagsins

Arðsemi eigin fjár Eglu var 95,0% á árinu.

Eiginfjárhlutfall var 63,0% þann 31. desember 2005 en var 58% í upphafi árs.