Donald Sterling, eigandi Los Angeles Clippers liðsins, ætlar ekki að greiða NBA deildinni sekt vegna ummæla sinna. Sports Illustrated greinir frá þessu.

Vegna ummæla Sterlings, sem unnusta hans tók upp, hefur hann verið sakaður um kynþáttafordóma. Honum hefur verið bannað að mæta á leiki í NBA deildinni fyrir lífstíð.

Auk þess að neita að borga sektina herma fréttir að Sterling hyggist stefna NBA deildinni vegna bannsins.

BBC greindi frá.