Liðlega fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa svikið undan skatti í rekstri verslunar sinnar. Verslunin seldi hjálpartæki ástarlífsins.

Maðurinn er grunaður um að hafa svikist undan að greiða 24 milljóna virðisaukaskatt á árunum 2009-2011 og um 6,6 milljónum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna á árunum 2009 til 2010.

Þá stóð maðurinn ekki skil á skilagreinum og virðisaukaskattskýrslum vegna fyrrnefndra tímabila.

Ákæran var gefin út í lok júlí og verður þingfest á næstunni.