Títan, fjárfestingarfélag sem er að fullu í eigu Skúla Mogensen fjárfestis, hefur um hríð skoðað kosti þess að hefja flugrekstur til og frá Íslandi. Sú vinna er nú á lokastigi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem send var fjölmiðlum i kvöld. Skúli Mogensen er sem kunnugt er stærsti hluthafinn í MP Banka.

Fram kemur að verið sé að klára samninga við stóran kanadískan flugrekenda um langtímaleigu á Boeing-þotum sem mynda munu flugflota félagsins í upphafi. Félagið hyggst hefja flug til Evrópu í vor. Það mun hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og vera að fullu í íslenskri eigu. Þá kemur fram að frekari upplýsingar um nafn hins nýja flugfélags, til hvaða áfangastaða verður flogið og hvenær sala flugmiða hefst, verða veittar á næstunni.

„Félag utan um flugreksturinn hefur verið að fullu fjármagnað. Það verður í meirihlutaeigu Títan, en aðrir hluthafar eru Baldur Baldursson og Matthías Imsland,“ segir í tilkynningunni.

„Baldur er framkvæmdastjóri félagsins sem unnið hefur að verkefninu og heitir Iceland jet ehf til bráðabirgða. Stjórn félagsins skipa Skúli Mogensen eigandi Títan, Baldur Baldursson framkvæmdastjóri, Davíð Másson forstjóri Avian Aircraft Trading og Björn Ingi Knútsson fyrrv. forstjóri Keflavíkurflugvallar og fulltrúi Norðurlanda í IATA  - alþjóðasamtökum flugrekenda. Skúli Mogensen er jafnframt stjórnarformaður hins nýja félags.“