Eignarhaldsfélagið DBApparel sem á Wonderbra undirfataframleiðandann hefur verið selt fyrir 400 milljónir evra. Upphæð sem samsvarar 62 milljörðum króna. Kaupandinn er stuttermabolaframleiðandinn Hanes. DBApparel á einnig vörumerkin Playtex og Shock Absorberg, en DB Apparel hefur verið í eigu eignarhaldsfélagsins Sun European Partners frá árinu 2006.

Wonderbra nærfötin, og þá einkum brjóstahaldarar, nutu einkum mikilla vinsælda á tíunda áratug síðustu aldar. Sér í lagi eftir að tékkneska ofurfyrirsætan Eva Herzigova kynnti fyrirtækið.