Samkomulag hefur náðst milli hluthafa Íspan ehf. og Austurbergs ehf. um kaup Austurbergs á Íspan sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á gleri og speglum. Fyrirtækið var stofnað árið 1969. Hjá félaginu starfa, að jafnaði, um það bil 30 manns í framleiðslu- og söludeild en félagið er staðsett að Smiðjuvegi 7 í Kópavogi. Seljendur munu starfa með nýjum eiganda fram á næsta ár.

Söluferli félagsins hófst í maí síðastliðnum. Fjölmargir aðilar sýndu áhuga á kaupum á félaginu. Niðurstaða fyrrgreinds ferlis var að ganga til samninga við Austurberg ehf. Umsjón söluferlisins var í höndum Deloitte sem jafnframt var ráðgjafi seljenda en Ernst & Young og Local lögmenn voru ráðgjafar kaupanda. Afhending félagsins hefur farið fram.

Guðmundur Grímsson, segir fyrir hönd. seljenda Íspan:  „Við erum mjög ánægð með þessa niðurstöðu og hlökkum til að vinna með nýjum eigendum að rekstri félagsins á næstu misserum. Við vorum farin að huga að kynslóðaskipum og teljum að niðustaða söluferlisins sé jákvæð fyrir félagið, starfsfólk þess og viðskiptavini.“

Einar Þór Harðarson, segir fyrir hönd Austurbergs: „Íspan er rótgróið framleiðslufyrirtæki með gott orðspor og er þekkt fyrir hátt þjónustustig og gæðaframleiðslu. Markmið okkar með kaupunum er að halda áfram því góða starfi og þróa félagið til framtíðar. Að baki Austurbergs er fjölskylda, þannig að Íspan verður áfram fjölskyldufyrirtæki. Íspan byggir á gömlum og góðum grunni, framleiðir gæða vörur á Íslandi, fyrir íslenskar aðstæður og getur afhent framleiðslu sína hratt til viðskiptavina um land allt. Mikil þekking og fagmennska er til staðar hjá Íspan þar sem flestir starfsmenn hafa unnið lengi hjá félaginu.“