Guðmundur Bjarni Sigurðsson, stofnandi og hönnunarstjóri vefhönnunarstofunnar Kosmos & Kaos hefur nú keypt alla hluti í fyrirtækinu. Seljendur eru bandaríska vefstofan UENO LLC og Kristján Gunnarsson, sem var annar stofnenda fyrirtækisins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Kosmon & Kaos hefur vakið athygli fyrir framúrstefnulega vefhönnun bæði innanlands og utan. „Hópur viðskiptavina er afar fjölbreyttur, allt frá einyrkjum til fjármálastofnana, en líkt og aðrir hefur Kosmos & Kaos fundið vel fyrir stækkun ferðamannaiðnaðarins og hefur síðustu misseri unnið fjölmarga vefi og sérlausnir á því sviði. Meðal viðskiptavina má nefna Gagnaveitu Reykjavíkur, Arion banka, Sjóvá, Orkuveituna, Nordic Visitor og Vodafone,“ segir í tilkynningunni.

Samstarf muni ekki raskast

Að sögn Guðmundar mun þjónusta við samstarfsaðila og viðskiptavini ekki raskast við breytingarnar þótt að markmið slíkra breytinga sé ávallt að gera betur. Starfsstöðvar fyrirtækisins munu áfram vera á sama stað í Hafnargötu í Reykjanesbæ og Hólmaslóð í Reykjavík. Inga Birna Ragnarsdóttir mun halda áfram sem framkvæmdarstjóri.

Kristján Gunnarsson, einn stofnenda fyrirtækisins, segist yfirgefa fyrirtækið sáttur, en þó með söknuði.  „Viðskilnaðurinn og salan á mínum hlut í félaginu er gerður í mesta bróðerni við Guðmund sem mun halda áfram að gera fínt fyrir Internetið, með því góða starfsfólki sem starfar hjá Kosmos & Kaos,“ er haft eftir Kristjáni í tilkynningunni.