Héraðsdómslögmennirnir Arnar Kormákur Friðriksson og Ómar Örn Bjarnþórsson hafa bæst í eigendahóp Íslensku lögfræðistofunnar og eru eigendur stofunnar því orðnir fjórir talsins. Fyrir eru þeir Haukur Örn Birgisson hrl. og Eggert Páll Ólason hdl.

Ómar Örn hefur starfað hjá Íslensku lögfræðistofunni frá 2009 en Arnar Kormákur starfaði hjá Opus lögmönnun frá árinu 2008 áður en hann gekk til liðs við stofuna.

Íslenska lögfræðistofan hefur frá stofnun sinnt almennri lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Undanfarin misseri hefur vaxandi áhersla verið lögð á ráðgjöf til fyrirtækja. Þrír löglærðir fulltrúar starfa hjá fyrirtækinu ásamt eigendunum fjórum.

Íslenska lögfræðistofan er með skrifstofu í Turninum við Smáratorg í Kópavogi.