Eigendur flugfélagsins Air Atlanta hafa stofnað kaffihúsið Café Atlanta og verður það til húsa í Hlíðasmára 3 þar sem flugfélagið er til húsa, og verður opnað fljótlega.

Matreiðslumaðurinn Gaukur Eyjólfsson, sem undanfarið hefur séð um að fæða starfsfólk Advania, mun sjá um veitingarnar á kaffihúsinu.

Stofnendur Café Atlanta eru ásamt Gauki stjórnendur og eigendur Air Atlanta, þeir Hannes Hilmarsson, Geir Valur Ágústsson, Stefán Eyjólfsson og Helgi Hilmarsson.