Eigendur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs undirbúa nú kaup á helmingi stærri ferju sem gæti leyst af núverandi skip síðar í sumar. Undanfarin átta ár hefur núverandi ferja verið í áætlunarsiglingum milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey en hún tekur 40 bíla í ferð.

Hún er sjöunda skipið sem ber heitið Baldur en sá fyrsti hóf siglingar um Breiðafjörðinn fyrir 90 árum. Ferjan flutti í fyrra um 55 þúsund farþega og tólf þúsund bíla en annar ekki lengur flutningum.

Pétur Ágústsson, skipstjóri á Baldri og framkvæmdastjóri Sæferða, segir í samtali við Vísi að iðulega séu biðlistar og frá því snemma í maí hafi verið mikið að gera og skipið oft fullt. Og það er greinilegt að ferjan nýtur vaxandi ferðamannastraums því þar sem við vorum að mynda komu skipsins til Brjánslækjar virtist okkur stór hluti farþeganna vera erlendir ferðamenn á leið að skoða Vestfirði.

Yfir vetrarmánuði eru flutningabílarnir áberandi og segir Pétur að vegna þeirra sé ferjan oft fullbókuð á veturna. Aukningin hafi verið meiri en menn hafi átt von á, ekki síst vegna erlendra ferðamanna.

Nú er stefnt á stærra skip. Útgerð skipsins er í viðræðum um að kaupa helmingi stærri ferju frá Lófóten í Norður-Noregi sem tæki 60 bíla og vonast Pétur til að hún verði komin á Breiðafjörðinn í fyrri hluta ágústmánaðar.