Samkvæmt nýrri skýrslu Center for Responsive Politics er stærstur hluti eigenda NFL-liðanna dyggir stuðningsmenn Repúblikanaflokksins.

Fyrirferðarmestur er Robert McNair, eigandi Houston Texas, sem hefur styrkt frambjóðendur flokksins um rúma 215 þúsund dali frá árinu 2009.

Skv. skýrslunni hafa eigendur, þjálfarar og liðsmenn allra NFL liðanna styrkt frambjóðendur Repúblikanaflokksins helmingi meira en Demókrataflokksins.