Eigendur Tals munu fá 19,78% hlut í 365 miðlum samþykki Samkeppniseftirlitið samruna félaganna. Kjarninn greinir frá málinu.

Eigandi Tals er félagið IP fjarskipti, en eigendur þess eru fagfjárfestasjóðurinn Auður 1, sem á 94% hlut, og Kjartan Örn Ólafsson, sem ræður yfir 6%.

Verði samruninn samþykktur af Samkeppniseftirlitinu mun eignarhlutur félaga á vegum Ingibjargar Pálmadóttur í 365 miðlum lækka niður í 77,97%. Við breytinguna mun eignarhlutur Ara Edwald, fyrrum forstjóra 365, þynnast úr 6,2% í 2,25%.