Á aðalfundum Stoða og TM fyrr á árinu nefndi Jón Sigurðsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Stoða, það sem valkost að skrásetja TM í Kauphöll Íslands á nýjan leik. Stoðir, sem áður kallaðist FL Group, heldur utan um ríflega 99% hlut í TM sem er ein stærsta eign félagsins. Gæti undirbúningur fyrir skráningu TM hafist í lok ársins eða byrjun þess næsta þannig að félagið yrði skrásett á næsta ári.

TM var skráð á Verðbréfaþing Íslands árið 1998 en skráð af markaði fyrir tveimur árum eftir að FL Group hafði eignast félagið að stærstum hluta.