Lokaniðurstöður kauptilboðs 365 hf. til hluthafa félagsins, eftir að það var opnað að nýju þann 21. júlí síðastliðinn, er á þá leið að alls hafa eigendur 7,2% hlutafjár í 365 hf., eða 185 aðilar samþykkt kauptilboðið, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar í dag.

Eigendur tæplega 93% hlutafjár (þar af rúm 2% í eigin bréfum félagsins), eða um 625 aðilar, munu eiga hluti sína áfram í félaginu eftir fyrirhugaða afskráningu þess.

Kauptilboðið var til hluthafa félagsins um kaup á bréfum hluthafa á genginu 1,20 kr.

Straumur fjárfestingabanki mun annast greiðslu til þeirra hluthafa sem tóku tilboði félagsins. Hluthafar munu fá andvirði bréfanna greitt á reikninga sína fyrir 1. ágúst næstkomandi.