Að meðtöldum eignarhlut Íslandsbanka í BNbank þá höfðu eigendur að yfir 90% hlutafjár samþykkt yfirtökutilboð Íslandsbanka í BNbank (Bolig- og Næringsbanken ASA) í Noregi. Eitt af þeim markmiðum sem Íslandsbanki setti sér með yfirtökutilboðinu var samþykki eigenda yfir 90% hlutafjár BNbank, en með 90% eignarhlut yrðu kaup Íslandsbanka á BNbank tryggð að fullu. Þó að samþykki hafi fengist eiga kaupin enn eftir að ganga eftir, en þau eru háð samþykki stjórnvalda í Noregi, auk þess sem áreiðanleikakönnun á eftir að fara fram.

Íslandsbanki hefur þegar lagt inn umsókn til norska fjármálaeftirlitsins og fjármálaráðuneytisins vegna kaupanna á BNbank. Þegar samþykki yfirvalda á kaupunum liggur fyrir mun Íslandsbanki óska eftir innköllun á þeim bréfum sem eftir kunna að standa, í samræmi við hlutafélagalög í Noregi.
Íslandsbanki hefur skilgreint Noreg og Ísland sem heimamarkaði sína og hyggst leggja áherslu á vöxt á norska markaðnum. BNbank er afar samkeppnishæft og vel rekið fjármálafyrirtæki, sem náð hefur góðum árangri og fellur vel að stefnu Íslandsbanka. Kaupin á BNbank munu tvöfalda útlán og innlán Íslandsbankasamstæðunnar.