Stjórnir Sparisjóðs vélstjóra, SPV og Sparisjóðs Hafnarfjarðar, SPH, hafa samþykkt áætlun um samruna sjóðanna. Samkvæmt áætluninni verður hlutur stofnfjáreigenda í SPV 61% í hinum sameinaða sparisjóði en hlutur stofnfjáreigenda í SPH 39%.

Eigið fé hins sameinaða sjóðs verður, að sögn Jóns Þorsteins Jónssonar, stjórnarformanns SPV, á milli 10 og 11 milljarðar króna. Þar af er stofnfé 150 milljónir króna. Að sögn Jóns er gert ráð fyrir að auka stofnfé sameinaðs sjóðs til að styrkja eiginfjárstöðu hans eftir að samþykktir nýs sjóðs liggja fyrir. Jón benti á að í samþykktum SPV væri til heimild til að 30 falda stofnfé, hvort sem það yrði raunin með sameinaðan sjóð eða ekki.

Á fundum stjórna beggja sparisjóðanna þann 27. apríl sl. var samþykkt að heimila stjórnarformönnum þeirra að hefja formlegar viðræður um sameiningu. Viðræður hófust strax í kjölfarið. Í framhaldi af þeim var samrunaáætlunin lögð fram og hún síðan samþykkt af stjórnum sparisjóðanna.

Öll gögn varðandi samrunaáætlunina hafa nú verið send hlutaðeigandi yfirvöldum til yfirferðar og samþykktar. Gangi áætlanir eftir standa vonir til þess að nýr, sameinaður sparisjóður hefji starfsemi seinna á árinu.