Árið 2014 batnaði eiginfjárstaða allra fjölskyldugerða samtals um 14,4%, eða úr 2.194 milljörðum króna í 2.510 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Miðað við eiginfjárstöðu í fasteign nam batinn 13,7% og miðað við annað eigið fé nam aukningin 17,2%. Mesta aukningin er hjá barnafjölskyldum. Heildareiginfjárstaða einstæðra foreldra batnaði um tæp 97% árið 2014 og hjóna með börn um rúm 22%. Eiginfjárstaða einstaklinga batnaði um tæp 15% og hjóna án barna um 10,5%.

Eiginfjárstaða milli ára batnar mest í aldurshópunum 25-44 ára eða á bilinu 36 - 253% sem einkum má rekja til bættrar eiginfjárstöðu í fasteign.

Fjölskyldum með neikvætt eigið fé í húsnæði fækkar töluvert. Árið 2014 voru 11.644 fjölskyldur með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteign eða rúmlega 27% færri en árið 2013 og nam neikvæð eiginfjárstaða þeirra í fasteign að meðaltali 4,4 milljónum króna.

Eignir jukust og skuldir lækkuðu

Eignir einstaklinga jukust um 7,1% milli ára eða úr 4.121 milljarði króna í 4.412 milljarða króna. Verðmæti í fasteignum hækkaði um 8,3% frá árinu 2013 sem rekja má að hluta til hækkunar fasteignamats milli ára.

Heildarskuldir námu 1.902 milljörðum króna í árslok 2014 og minnkuðu um 1,3% frá fyrra ári einkum vegna skuldalækkunar einstæðra foreldra og hjóna með börn. Skuldir einstæðra foreldra drógust saman um 3,2% og hjóna með börn um 2,9% en jukust hins vegar hjá hjónum án barna um 0,5% og 0,1% hjá einstaklingum.