Bítillin Paul McCartney, sem þegar er einn af ríkustu tónlistarmönnum heims, klífur nú enn hærra á lista Sunday Times yfir tekjuhæstu tónlistarmenn heims. Auður hans jókst úr 495 milljónum punda í 665 milljónir punda á milli ára. McCartney er nú í þriðja sæti á listanum.

McCartney giftist Nancy Shevell, þriðju eiginkonu sinni, í október síðastliðnum. Hún kemur úr auðugri bandarískri fjölskyldu. Shevell er aðstoðarforstjóri í fjölskyldufyrirtækinu og færði 150 milljónir punda í búið þegar hún giftist McCartney. Auk þess hagnaðist McCartney um 20 milljónir punda með plötusölu og tónleikahaldi á árinu.

McCartney er ekki eini bítillinn á listanum en Ringo Starr skipar þar 18. sæti og ekkja George Harrison, Olivia, ásamt syni þeirra Dhani, er í 13. sæti listans.