Lífeyrissjóðir landsins hafa fært niður virði skuldabréfa, útgefnum af íslenskum fyrirtækjum og bönkum, um 153 milljarða króna frá því í bankahruninu. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabanka Íslands um eignarstöðu lífeyrissjóðanna.
Innlend skuldabréfaeign á banka og fyrirtæki nam 337,3 milljörðum króna í lok september 2008 en er nú 184,5 milljarða króna virði. Hún hefur því nánast helmingast. Athygli vekur að virði fyrirtækjabréfa hefur hækkað um alls 15 milljarða króna frá haustinu 2009 þegar það stóð sem lægst.
Heimildir Viðskiptablaðsins herma að sú hækkun er meðal annars rakin til nauðasamninga sem ýmsir skuldabréfaútgefendur hafa farið í gegnum. Alls óvíst er þó um hversu mikið mun endurheimtast að lokum.