Vogunarsjóðurinn Taconic Capital hefur þrefaldað eignarhlut sinn í Kaupþingi frá árinu 2016 en hann á nú 46% í félaginu að því er Fréttablaðið greinir frá. Er sjóðurinn orðinn stærsti einstaki eigandinn í Kaupþingi og eignarhlutur hans er ríflega þriðjungur í Arion banka. Paul Copley forstjóri Kaupþings er sagður vera fenginn til félagsins fyrir tilstuðlan Attestor vogunarsjóðsins.
Sjóðurinn, sem jafnframt á 9,99% hlut í Arion banka, helstu eign Kaupþings, jók eignarhlut sinn í félaginu á síðasta ári úr 38%. Keypti sjóðurinn meðal annars 6% eignarhlut Seðlabanka Íslands fyrir um 19 milljarða í árslok 2016.
Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í septembe r fékk sjóðurinn þá grænt ljós frá Fjármálaeftirlitinu um að hann væri hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka. Samanlagt er beinn og óbeinn eignarhlutur sjóðsins í Arion banka nú ríflega þriðjungur, eða um 36% í Arion banka.
Hinir sjóðirnir og Goldman Sachs hafa minnkað við sig
Á sama tíma og hlutur Taconic Kaupþingi hefur aukist hefur eignarhlutur hinna vogunarsjóðanna tveggja sem keyptu tæplega 30% í Arion banka í mars minnkað nokkuð. Nam kaupverðið um 49 milljörðum króna á sínum tíma, en Því til viðbótar bætti Attestor við sig 0,44% hlut í bankanum í lok júní með því að nýta sér kauprétt.
Hins vegar hefur eignarhlutur Goldman Sachs í Kaupþingi helmingast á milli ára og nemur hann í dag um 2,9%. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í síðustu viku hefur bankinn og Attestor capital keypt samtals 2,8% hlut í Arion banka af Kaupþingi.
Stærstu hluthafar Kaupþings nú:
- 31,7% - TCA Opportunity Investments (sjóður í stýringu Taconic)
- 9,9% - Sculptor Investments (sjóður í stýringu Och-Ziff)
- 9,11% - TCA Sidecar II (sjóður í stýringu Taconic)
- 8,8% - CCP Credit Acquisition
- 5,5% - Trinity Investments (sjóður í stýringu Attestor)
- 5% - JP Morgan Securities
- 4,1% - Citadel Equity
- 4% - Deutsche Bank AG
- 3,3% - TCA Event Investments (sjóður í stýringu Taconic)
- 3,2% - Kaupthing Singer & Friedlander
- 2,9% - Goldman Sachs
- 1,5% - TCA ECDF II Investments (sjóður í stýringu Taconic)
Fleiri fréttir um málefni Arion banka:
- 15. febrúar - Vilja hlut ríkisins á 23,4 milljarða
- 15. febrúar - Arion kaupir 9,5% í sjálfum sér
- 14. febrúar - Arion hagnaðist um 14,4 milljarða
- 14. febrúar - Goldman Sachs bætir við sig í Arion
- 13. febrúar - Kaupþing selur sjóðum 5% í Arion banka
- 12. febrúar - Staðfesta tillögu um arðgreiðslu
- 12. febrúar - Ætla ekki að kaupa í Arion
- 7. febrúar - Gildi vilji ekki kaupa í Arion
- 6. febrúar - Arion greiði milljarða í arð fyrir sölu
- 31. janúar - Fengju hlutinn á 23 milljarða
- 25. janúar - Vilja kaupa hlut ríkisins í Arion
- 16. janúar - Kaupþing býður lífeyrissjóðum Arion á ný
Fréttir um umsvif Taconic og annarra sjóða í Arion banka:
- 27. september 2017 - Attestor nýtti sér kauprétt í Arion
- 22. september 2017 - Hæfir til að fara með virkan eignarhlut
- 13. september 2017 - Eignarhald vogunarsjóða verður virkt
- 6. september 2017 - Goldman Sachs með atkvæðarétt í Arion
- 16. ágúst 2017 - Nýta ekki forkaupsrétt í Arion banka
- 27. maí 2017 - Söluferli Arion banka í uppnámi
- 12. apríl 2017 - Taconic veðjar á íslensku hagsveifluna
- 12. apríl 2017 - Taconic sækir um hæfismat FME
- 5. apríl 2017 - Taconic taldi bréfin undirverðlögð
- 3. apríl 2017 - Vilja að ríkið taki yfir eignarhald á Arion
- 2. apríl 2017 - Fimm eiga helming
- 26. mars 2017 - Áttu einnig kröfur á Glitni
- 25. mars 2017 - Mættu seint og fara seint
- 23. mars 2017 - Vilja eiga meira en 10% í Arion
- 22. mars 2017 - Sala á 50% hluta í Arion á lokametrunum
- 21. mars 2017 - Taconic á um þriðjungshlut í Arion
- 21. mars 2017 - Kaupverðið undir lágmarki ríkisins
- 20. mars 2017 - Kaupin á Arion ekki skammtímafjárfesting
- 20. mars - Goldman Sachs meðal kaupenda í Arion
- 20. mars 2017 - Munu funda með bankastjóra
- 20. mars 2017 - Ber að tilgreina nöfn þeirra sem eiga umfram 1%
- 19. mars 2017 - Selja 29% í Arion banka
- 13. september 2016 - Bjóða sjóðum 20-40% hlut í Arion