Á aðalfundi Húsasmiðjunnar í dag var samþykkt tillaga fráfarandi stjórnar um að afskrifa allt hlutafé þáverandi eigenda í félaginu og gefa út nýtt hlutafé. Jafnframt samþykktu hluthafar að afsala sér forkaupsrétti á nýjum hlutum og í kjölfarið skráði Eignarhaldsfélagið Vestia ehf., dótturfélag Landsbankans, sig fyrir nýju lögboðnu lágmarkshlutafé í félaginu. Húsasmiðjan ehf. er því nú að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf. segir í tilkynningu frá félaginu.

Í tilkynningunni kemur fram að rekstur Húsasmiðjunnar hefur að undanförnu ekki farið varhluta af samdrætti í íslensku efnahagslífi, gengisfalli íslensku krónunnar og hruni á byggingamarkaði. Stjórn og stjórnendur félagsins hafa brugðist við þessum erfiðu aðstæðum með afgerandi rekstraraðgerðum. Hagrætt hefur verið á mörgum sviðum, starfsfólki fækkað, verslanir sameinaðar eða þeim lokað og mikið átak gert í birgðamálum segir í tilkynningu.

Jákvætt sjóðsstreymi á árinu

Þessar aðgerðir hafa þegar skilað árangri og gera áætlanir stjórnenda ráð fyrir að rekstur félagsins skili jákvæðu sjóðsstreymi á árinu þrátt fyrir minnkandi sölu á byggingavörumarkaði. Rekstur félagsins er því í viðunandi horfi, lausafjárstaða er góð og félagið í skilum við birgja og lánardrottna segir í tilkynningu. Hins vegar hefur óhagstæð þróun á gengi íslensku krónunar haft neikvæð áhrif á skuldsetningu Húsasmiðjunnar. Af því leiðir að nauðsynlegt er að koma á nýrri fjárhagslegri skipan hjá félaginu.

„Húsasmiðjan hefur gengið í gegnum umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir í kjölfar fordæmislauss hruns á markaði okkar. Þær hafa ekki verið sársaukalausar, en þrotlaus vinna og dugnaður starfsfólks hafa leitt til þess að rekstur félagsins stendur undir sér þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu. Við blasti hins vegar að hrun krónunnar hafði gert erlendar skuldir, sem koma eiga til greiðslu á næstu tveimur árum og ekki tengjast daglegum rekstri Húsasmiðjunnar, óviðráðanlegar að óbreyttu. Markmiðið með fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins er að bregðast við þessu og vernda þannig þau verðmæti sem liggja í starfsemi og starfsfólki félagsins og viðhalda núverandi rekstri Húsasmiðjunnar,“ segir Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar í tilkynningunni.