Hlutur eigna í Eignarhaldsfélaginu Fasteign verður seldur og félagið minnkað, samkvæmt samkomulagi á milli félagsins og kröfuhafa. Hluthafafundu í félaginu var haldinn 24. maí síðastliðinn. Félagið verður sem fyrr áfram í eigu níu sveitarfélaga ásamt Arion banka. Fasteign verður eftir breytinguna hreint leigufélag en mun ekki sinna annarri þjónustu við leigutaka sína eins og hingað til er varðar þróun eigna og nýframkvæmdir. Þá munu leigutaka sjá um allan rekstur eignanna sjálfra ásamt viðhaldi þeirra.
Eignarhaldsfélagið á fasteignir víða um land. Bygging Háskólans í Reykjavík er ein stærsta eignin. Á meðal annarra eigna er sundlaugin á Álftanesi.
Eigendur Fasteignar sem jafnframt eru leigutakar eftir endurskipulagningu Arion banki og sveitarfélögin Fjarðarbyggð, Fljótsdalshérað, Grímsnes-og Grafningshreppur, Norðurþing, Reykjanesbær, Sandgerði, Vestmannaeyjabær, Vogar og Ölfus.
Í tilkynningu um málið kemur fram að endursamið hafi verið um leigugjöld, sem lækki í kringum 50%, sem og kjör í lánasamningum.
Vinna við frágang málsins er þegar hafin en gert er ráð fyrir að skjalfrágangi verði lokið fyrir miðjan ágúst.