Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hagnaðist um 1.367 milljónir króna árið 2016 samkvæmt rekstrarreikningi, samanborið við 1.057 milljónir árið áður. Leigutekjur félagsins námu 1.317 milljónum króna árið 2016. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam hins vegar 884,5 milljónir króna í fyrra.

Eignir félagsins voru metnar á 20,1 milljarð í lok ársins 2016 samanborið við 18,5 milljarða á sama tíma árið áður. Eigið fé eignarhaldsfélagsins nam 10,1 milljarði í lok árs 2016 og skuldir þess eru 9.995 milljónir króna.