Eignaverðsvísitala Kaupþings hækkaði um 0,8% í júní. ?Það er talsvert minni hækkun en í síðasta mánuði er eignaverðsvísitalan hækkaði um 3,2% vegna mikillar hækkunar fasteignaverðs,? segir greiningardeild bankans.

Fasteignaverð hins vegar um 0,5% í þeim mánuði, sem var nálægt væntingum greiningardeildarinnar.

?Hlutabréf hækkuðu um 1,6% í mánuðinum samkvæmt OMXI15 vísitölunni sem er einnig minni hækkun en í síðasta mánuði og hækkun skuldabréfa nam 0,8%. Fasteignir og hlutabréf höfðu því jafnmikil áhrif til hækkunar á vísitölunni að þessu sinni eða 0,3% hvort. Skuldabréf höfðu 0,2% áhrif til hækkunar. Ársbreyting vísitölunnar er nú komin í 10,9% og hefur ekki verið meiri frá því í apríl 2006.?

Hækkun hlutabréfa mest áhrif á árinu

Hlutabréf haft hafa mest áhrif til hækkunar á vísitölunni á árinu, eða 9,5% að raunvirði en raunhækkun bréfa á íslenskum hlutabréfamarkaði síðustu tólf mánuði var 47,6% ef miðað er við úrvalsvísitölu Kauphallarinnar, OMXI15, að sögn greiningardeildarinnar.

?Í júní hafði fasteignaverð haft næstmest áhrif til hækkunar vísitölunnar á árinu eða 9,5% en síðustu tólf mánuði var hækkun fasteignaverðs 5,2% að raunvirði. Skerfur skuldabréfahækkana til vísitölunnar er minnstur, aðeins um 0,1% í júní og er ársbreytingin 0,4%. Hækkun eignaverðs hefur m.a. verið að hafa áhrif til aukningar einkaneyslu síðustu mánuði og því verður forvitnilegt að fylgjast með þróun næstu mánaða,? segir greiningardeildin.