Almenni lífeyrissjóðurinn jók eignir sínar í fyrra um 7,3 milljarða króna. Sjóðsfélögum fjölgaði um 735 í fyrra og voru þeir í árslok 32.435. Heildareignir sjóðsins nema nú um 98,7 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum sem birtar hafa verið á vefsíðu Almenna lífeyrissjóðsins.
Eftirfarandi upplýsingar um stöðu Almenna lífeyrissjóðsins voru birtar fyrr í dag á vefsíðu sjóðsins:
„Heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins voru 98,7 milljarðar í árslok 2010 og stækkaði sjóðurinn um 7,3 milljarða. Sjóðfélagar í árslok voru 32.435 og fjölgaði um 735 á árinu.
· Iðgjöld til sjóðsins voru samtals 7,4 milljarðar og lækkuðu um 3% frá fyrra ári. Iðgjöldin skiptust í lágmarksiðgjöld 4,6 milljarðar og viðbótariðgjöld 2,8 milljarðar.
· Ríkissöfn Almenna lífeyrissjóðsins skiluðu bestu ávöxtuninni árið 2010. Ríkissafn langt hækkaði um 11,5% og Ríkissafn stutt um 9,5%. Innlánasafnið og Ævisafn IV hækkuðu um 6,4% og 5,8%. Innlánsvextir og lækkun á ávöxtunarkröfu ríkistryggðra skuldabréfa skýra góða ávöxtun safnanna.
· Blönduð verðbréfasöfn liðu fyrir að erlend verðbréf hækkuðu lítið vegna styrkingar krónunnar. Ævisafn I hækkaði um 4,6%, Ævisafn II um 4,7%, Ævisafn III um 3,8% og samtryggingarsjóður um 4,1%.
· Að teknu tilliti til 2,6% verðbólgu var raunávöxtun ávöxtunarleiða sem hér segir: Ríkisafn langt 8,6%, Ríkissafn stutt 6,7%, Innlánasafn 3,7%, Ævisafn I 2,0%, Ævisafn II 2,0%, Ævisafn III 1,2%, Ævisafn IV 3,1% og samtryggingarsjóður 1,5%.
· Óvissa er um uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninga sem gerðir voru árið 2008. Varúðar er gætt við mat á samningunum og hefur Almenni lífeyrissjóðurinn gjaldfært þá miðað við gengi á gjalddaga ásamt dráttarvöxtum.
· Tryggingafræðileg staða samtryggingarsjóðs batnaði milli ára. Í lok ársins voru áunnar skuldbindingar 12,2% umfram eignir og heildarskuldbindingar 5,4% umfram heildareignir (núverandi eignir að viðbættu núvirði framtíðariðgjalda).
· Heildarfjárhæð útistandandi sjóðfélagalána var 13 milljarðar í árslok. Á árinu 2010 voru veitt 58 lán fyrir samtals 456 milljónir. Hámarkslán til sjóðfélaga eru 35 milljónir. Sjóðurinn býður sjóðfélögum í greiðsluerfiðleikum margvísleg úrræði. Sjóðurinn er m.a. aðili að samkomulagi um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila og býðst sjóðfélögum að færa veðskuldir niður að 110% af verðmæti eigna að uppfylltum skilyrðum.
· Árið 2010 greiddi Almenni lífeyrissjóðurinn samtals 1,8 milljarð úr séreignarsjóði samkvæmt tímabundinni heimild til úttektar séreignarsparnaðar til 3.800 sjóðfélaga eða 148 milljónir á mánuði. Á árunum 2009 og 2010 hafa 6.500 sjóðfélagar nýtt sér þessa heimild og fengið samtals 4,2 milljarða í útborgun.“