Heildareignir innlánsstofnana námu 2.945,2 milljörðum króna í lok mars 2013 og hækkuðu um 14,3 milljarða í mánuðinum. Af heildareignum námu innlendar eignir 2.549,5 milljörðum og hækkuðu um 16,3 milljarða. Kemur þetta fram í tölum Seðlabankans.

Erlendar eignir innlánsstofnana námu 395,7 milljörðum og lækkuðu um 2 milljarða króna í mars.

Skuldir innlánsstofnana námu 2.420,5 mmilljörðum í lok mars og lækkuðu um 6,1 milljarða í mánuðinum. Innlendar skuldir námu 2.292 milljörðum og hækkuðu um 1,3 milljarða. Erlendar skuldir innlánsstofnana námu 128,5 milljörðum og hækkuðu um 4,8 milljarða í mars. Eigið fé innlánsstofnana nam 524,7 milljörðum í lok mars.