Hæstiréttur hefur fellt er úr gildi kyrrsetning sýslumannsins í Reykjavík á sex milljóna króna innstæðu á bankareikningi Fjársjóðs ehf. Fyrrnefnt félag er í eigu Erlendar Magnússonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Glitni.
Sérstakur saksóknari hefur ákært Erlend fyrir innherjasvik. Erlendur er grunaður um að hafa í janúar og mars 2008 selt hlutabréf í Glitni, sem voru í eigu Fjársjóðs, þrátt fyrir að búa yfir upplýsingum um slæma lausafjárstöðu bankans, sem hann hefði orðið áskynja um í starfi sínu.
Á rannsóknarstigi krafðist sérstakur saksóknari kyrrsetningar á sex milljónum sem Fjársjóður átti á bankareikningi. Sýslumaður féllst á þá kröfu, en Erlendur stefndi sérstökum saksóknara fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til að fá kyrrsetningunni hnekkt.
Héraðsdómur staðfesti ákvörðun sýslumanns. Niðurstaðan var kærð til Hæstaréttar sem í dag felldi kyrrsetninguna úr gildi vegna þess hve miklar eignir Fjársjóðs eru miðað við andvirði þessara kyrrsettu eigna. Bókfært eigið fé félagsins eru 100 milljónir króna.
Mál sérstaks saksóknara gegn Erlendi og Fjársjóði verður aftur á móti rekið áfram. Það var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku.