Eignir verðbréfasjóða námu 260,4 milljörðum króna í lok mars og lækkuðu um 3,5 milljarða milli mánaða, að því er fram kemur í hagtölum Seðlabankans.

Eignir fjárfestingarsjóða hækkuðu hins vegar um 2,2 milljarða á milli mánaða og námu 56,8 milljörðum króna í lok mars. Eignir fagfjárfestasjóða námu 235,3 milljörðum í lok mars og lækkuðu um 2,8 milljarða í mánuðinum. Í mars jukust eignir í þeim sjóðum sem flokkast sem hlutabréfasjóðir um 3,2 milljarða og í blönduðum sjóðum um 0,8 milljarða. Á móti lækkuðu eignir skuldabréfasjóða um 6,3 milljarða króna í mánuðinum.

Heimili og lífeyrissjóðir áttu samtals 58% hlutdeildarskírteina verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í lok mars.