Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.124 milljörðum króna maílok og hækkuðu um 12,1 milljarð króna á milli mánaða. Innlendar kröfur á lánastofnanir hækkuðu um rúma 9 milljarða króna og námu 79,2 milljarða króna. Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabanka Íslands.

Íbúðalánasjóður.
Íbúðalánasjóður.
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Útlán og eignaleigusamningar námu tæplega 925 milljörðum króna og hækkuðu um 1,9 milljarð króna. Verðbréfaútgáfa hækkaði um 10,1 milljarð króna og nam 880,3 milljarð króna. Eigið fé ýmissa lánafyrirtækja nam 56,3 milljörðum króna í lok maí.

Í Hagtölum kemur fram að gögnin fyrir janúar til maí 2011 séu bráðabirgðagögn. Gögnin verða því uppfærð eftir því sem nákvæmari gögn liggja fyrir. Hagtölur ýmissa lánafyrirtækja endurspegla einungis starfandi lánafyrirtæki. Til ýmissa lánafyrirtækja teljast Íbúðalánasjóður, fjárfestingarbankar, eignarleigur, greiðslukortafyrirtæki og fjárfestingarlánasjóðir.