Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu um 1.303 milljörðum króna í lok nóvember og hækkuðu um 9,4 milljarða króna milli mánaða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Útlán og markaðsverðbréf hækkuðu um 8,5 milljarða króna og námu 1.167,5 milljörðum króna í lok nóvember. Að sögn Seðlabankans skýrst hækkunin að mestu af verðtryggðum skuldabréfum sem hækkuðu um 9,2 milljarða í mánuðinum.

Eigið fé nam 75,9 milljörðum króna í lok mánaðarins og hækkaði um 0,6 milljarða.