Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.310 milljörðum króna í lok júlí og hækkuðu um 12,4 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í nýjum Hagtölum Seðlabankans.

Útlán og eignarleigusamningar námu 1.142 milljörðum króna í lok mánaðarins og hækkuðu um 9,9 milljarða frá fyrra mánuði. Innstæður í Seðlabankanum hækkuðu um tæpa 6 milljarða milli mánaða, fóru úr 11,8 milljörðum í 17,8 milljarða en kröfur á lánastofnanir hækkuðu um 1 milljarða króna.

Eigið fé nam 74,7 milljörðum króna í lok júlí og minnkaði um 4,5 milljarða milli mánaða.