Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.300 milljörðum króna í lok júní og hækkuðu um 36,3 milljarða í mánuðinum. Útlán og eignarleigusamningar námu 1.132 milljörðum króna í lok mánaðarins og hækkuðu um 23,3 milljarðar frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en innstæður í Seðlabankanum drógust saman um 4,6 milljarða króna milli mánaða, fóru úr 16,5 milljörðum í 11,9 milljarða en kröfur á lánastofnanir hækkuðu um 12,4 milljarða króna.

Eigið fé nam 80,1 milljarði króna í lok júní og hækkaði um 9,6 milljarða milli mánaða.