Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.264 milljörðum króna í lok apríl og hækkuðu um 8 milljarða í mánuðinum.

Útlán og eignarleigusamningar jukust um 9 milljarða króna í apríl og námu 1.108 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans en þar segir að aukningin sé að mestu vegna verðtryggðra skuldabréfa sem hækkuðu um 8 milljarða í mánuðinum.

Eigið fé nam 60 milljörðum króna í lok apríl og hækkaði um 4 milljarða milli mánaða, samanborið við aukningu upp á 27 milljarða mánuðinn áður.