Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.263,7 milljörðum króna í lok maí og lækkuðu um 2,5 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en útlán og eignarleigusamningar námu 1.108,7 milljörðum króna í lok mánaðarins og lækkuðu um 2 milljarða frá fyrra mánuði, samanborið við hækkun mánuðinn áður upp á 11,3 milljarða.

Þá kemur fram að innstæður í Seðlabankanum jukust um tæpa 13 milljarða króna milli mánaða, fóru úr 3,4 milljörðum í 16,4 milljarða en kröfur á lánastofnanir lækkuðu um 13,4 milljarða. Eigið fé nam 70,5 milljörðum króna í lok maí og hækkaði um 9,9 milljarða milli mánaða.