Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.296 milljörðum króna í lok febrúar og lækkuðu um 6,3 milljarða króna á milli mánaða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Verðtryggð skuldabréf námu 851,2 milljörðum króna í lok mánaðarins og lækkuðu um 2,5 milljarða frá fyrra mánuði. Eignarleigusamningar námu 131,8 milljörðum króna og lækkuðu um tæpa 2,7 milljarða á milli mánaða.

Eigið fé lækkaði um 1,2 milljarða í febrúar og stóð í 65,4 milljörðum í lok mánaðar.