Hrein eign lífeyrissjóða í lok september sl. var 1.835 milljarðar króna og hækkaði um 7,4 milljarða í mánuðinum eða um 0,4%.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans en þar segir að hækkunina megi helst rekja til breytinga á erlendum liðum.

Erlend verðbréfaeign hækkaði um 6 milljarða eða 1,2 % frá fyrri mánuði. Sé miðað við september 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 111 milljarða á milli ára eða 6,4%

Þó er tekið fram á vef Seðlabankans að enn sé nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.