Hrein eign lífeyrissjóða í lok mars sl. var 1.846 milljarðar króna og hækkaði um 44 milljarða í mánuðinum.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar er breytingin sögð skýrast að hluta til vegna hækkunar erlendra hlutabréfamarkaða í mars sl.

Sé miðað við mars 2009 hefur hrein eign hækkað um 232 milljarða króna.

Seðlabankinn tekur þó fram að ekki liggi fyrir endanlegt ársuppgjör allra sjóðanna og því er um að ræða bráðabirgðatölur sem geta tekið breytingum. Breytingar verða gerðar eftir því sem endurskoðun lífeyrissjóðanna liggur fyrir.