Óvenjumikil hækkun varð á eignum lífeyrissjóðanna í nóvember síðastliðnum. Í frétt á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða kemur fram að eignirnar jukust úr 1.127 milljörðum kr. í lok október s.l. í 1.169 milljarða kr. í lok nóvember s.l. eða um 42.5 milljarða kr., sem er 3,8% aukning á einum mánuði.

Frá ársbyrjun 2005 hafa eignir lífeyrissjóðanna aukist um 183 milljarða kr. til nóvemberloka s.l. eða um 18,5%. Til marks um þá miklu eignaaukningu sem varð í nóvember s.l. eða um 42,5 milljarða króna, má benda á að eignir sjóðanna jukust að meðaltali um 16.6 milljarða króna í hverjum mánuði síðasta árs til loka nóvember.

Líkur eru á því að eignir lífeyrissjóðanna verði um 1.200 milljarða króna í lok ársins 2005. Skýringin á þessari eignaaukningu má rekja til mikillar hækkunar á innlendum hlutabréfum, en einnig hafa erlendir verðbréfamarkaðir skilað drjúgum tekjum.

Þessar upplýsingar koma fram í efnahagsyfirliti lífeyrissjóða, sem Seðlabanki Íslands gefur út og er byggt á áætlun 22 stærstu lífeyrissjóðanna, sem í árslok 2004 áttu 94% af hreinni eign allra lífeyrissjóða.

Erlendar eignir lífeyrissjóðanna námu í lok nóvember s.l. rúmlega 285 milljörðum króna eða um 24,4% af heildareignum sjóðanna. Þetta hlutfall nam um 22,1% í lok árs 2004.

Þá vekur athygli að sjóðfélagalánin námu alls 93,4 milljörðum kr. í lok nóvember og höfðu aukist um 6,6 milljarða kr. á árinu. 8% af eignum sjóðanna eru bundin í lánum til sjóðfélaga.