Hrein eign lífeyrissjóða var 1.808 milljarðar króna í lok júlí og hafði hækkað í mánuðinum um 2,4 milljarða króna eða 0,1%.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Þar kemur fram að tólf mánaða hækkun eignarinnar til júlíloka var 10,6% samanborið við 20,6% á sama tímabili ári fyrr.

Sjóður og bankainnstæður hækkuðu um 10,5 milljarða króna en útlán og verðbréfaeign lækkaðu um 9,1 milljarð í mánuðinum.

Verðbréf með breytilegum tekjum lækkuðu í mánuðinum um tæpa 26 milljarða króna og vó þar hæst lækkun erlendra hlutabréfasjóða um 24,2 milljarðar.

Þá jukust hins vegar verðbréf með föstum tekjum í júlí um tæpa 16,9 milljarðar króna