Hrein eign lífeyrissjóða var 1.920,2 milljarðar króna í lok desember sl. og hækkaði um 26,9 milljarða í í mánuðinum eða um 1,4%.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Innlend verðbréfaeign hækkaði um 43,4 milljarða króna og nam rúmlega 1.352 milljörðum króna í lok mánaðarins. Hækkunina má að mestu leyti rekja til aukningar á eign lífeyrissjóða á íbúðabréfum eða sem nemur um 35 milljörðum króna.

Erlend verðbréfaeign nam um 473 milljörðum króna og lækkaði um tæpa 13 milljarða í lok desember.