Heildareignir innlánsstofnana lækkuðu um 97 milljarða í janúar frá fyrri mánuði og námu 2.783 milljörðum króna í lok nóvember sl. Heildarskuldir þeirra lækkuðu um 112 milljarða króna og námu 2.340 milljörðum króna.

Seðlabankinn birti stærðir bankakerfisins í gær. Eigið fé nam 442 milljarða króna í lok nóvember og hækkaði um 16 milljarða.

„Útlán Arion banka hf, Íslandsbanka hf og NBI hf eru í þessum tölum metin á kaupvirði þ.e. því virði sem þessir aðilar keyptu útlánasafnið á af Kaupþing banka hf , Glitni hf og Landsbanka Íslands hf. Kaupvirðið er það virði sem vænt er að muni innheimtast af útlánunum. Virði útlánasafnsins endurspeglar því ekki skuldastöðu viðskiptavina.
Lánasöfnin eru endurmetin með reglubundnum hætti, sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á virði einstakra lána. Breytingar milli mánaða/ársfjórðunga á útlánasafni þessara aðila geta því stafað af endurmati á virði lána eða af raunverulegum lánahreyfingum.“