Heildareignir sjávarútvegsins í lok síðasta árs námu 547 milljörðum króna, heildarskuldir voru 543 milljarður og eigið fé 105 milljarðar. Hreinn hagnaður (EBT), skv. árgreiðsluaðferð, í sjávarútvegi nam 22,6% í fyrra samanborið við 19,8%  árið 2010, að því er fram kemur í ritinu Hagur veiða og vinnsla 2011 sem Hagstofan gaf út í dag.

Í ritinu segir að hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2010 og 2011. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 28,9% í 30,3%, í fiskveiðum lækkaði hlutfallið hins vegar lítillega á milli ára, fór úr 26,6% árið 2010 í 26,4% af tekjum í fyrra. Í fiskvinnslu hækkaði hlutfallið hins vegar, fór úr 16,1% í 19,1%. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2011.