Krónur
Krónur
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Heildareignir tryggingafélaganna námu 144,3 milljörðum króna í lok ágúst, samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands . Eignirnar lækkuðu um 4,5 milljarða króna. á milli mánaða.

Handbært fé lækkaði um 2,5 milljarða og nam 11,3 milljörðum. Kröfur á lánastofnanir lækkuðu um rúman milljarð og námu rúmlega 3 milljörðum. Útlán og markaðsverðbréf námu 91,3 mmilljörðum og lækkuðu um 300 milljónir á milli mánaða. Skuldir tryggingafélaganna námu 82 milljörðum króna, sem er að stærstum hluta vátryggingaskuld eða sem nemur 77,6 milljörðum.