Tap varð af rekstri fjárfestingarfélagsins Ursus ehf. að fjárhæð 3,4 milljónir króna á síðasta ári borið saman við 9,8 milljóna tap árið áður. Ursus er í eigu Heiðars Guðjónssonar fjárfestis.

Að teknu tilliti til óinnleystra tekna og gjalda færða á eigið fé nam heildarhagnaður ársins 48,3 milljónum króna en 242,9 milljónir árið 2015.

Eignir námu tæplega 2.081 milljón í árslok (þar af voru 1.864 milljónir í hlutabréfum) borið saman við 1.707 milljónir í árslok 2015. Eigið fé nam 581 milljón í árslok 2016.