Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 284,8 milljörðum króna í lok ágúst og hækkuðu um 11 milljarða á  milli mánaða eða um 4%.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Innlend verðbréf hækkuðu um 11,5 milljarða króna í mánuðinum, þar af nam hækkun íbúðabréfa 5,5 milljörðum og annarra ríkisbréfa 4,8 milljörðum. Eignir verðbréfa og fjárfestingarsjóða eru 94% innlend verðbréf sem að stærstum hluta eru ríkistryggð verðbréf og innlán.

Þá kemur fram að í lok ágúst var opið fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í 53 sjóðum. Auk þess voru 17 sjóðir í slitaferli taldir með í birtum ágúst gögnum, þar sem verið er að gera upp eignir sjóðanna áður en þeim verður lokað.